Grænmetiseldhúsið - námskeið þann 11. janúar 2024

fimmtudagur 28. des. 2023 kl. 10.34
Fréttir garra

Fimmtudaginn 11.janúar klukkan 14 verður námskeið í Garra þar sem Paul Florizone eigandi Greenway og Peter De Wandel matreiðslumeistari hjá Ardo kynna nýjungar og koma með hugmyndir að grænmetisréttum fyrir fagfólk.

Paul Florizone kynntist grænmetismatargerð árið 1996 á ferðalagi um Indland og komst að því að indverska grænmetiseldhúsið er einstaklega bragðgott og fjölbreytt. Á ferð sinni um Indland fæddist hugmyndin að kynna fyrir öðrum hversu bragðgott grænmetiseldhúsið getur verið. Greenway opnaði sinn fyrsta veitingastað í Gent árið 1998 og sló strax í gegn. Síðan þá hefur fyrirtækið verið brautryðjandi í grænmetismatvörum sem innblásnar eru af indverskri matargerð.

Greenway notar vörur frá Ardo í uppskriftum sínum og því ætlar Peter De Wandel, matreiðslumeistari hjá Ardo að taka þátt í námskeiðinu. Ardo er stöðugt að koma með nýjungar í vöruframboði og uppskriftum sem stuðla að heilbrigðu líferni.

Fimmtudaginn, 11. janúar kl. 14-16

Hádegismóar 1, 110 Reykjavík, 4. hæð

Áhersla á grænmetisrétti, vörur frá Greenway og Ardo

Fyrir matreiðslufólk, nema og annað fagfólk sem starfar við veitingagerð. Takmarkað sætaframboð. Námskeiðið fer fram á ensku.

Skráning hér. Grænmetiseldhúsið

Peter De Wandel

PORTRET PAUL GREENWAY NO NONSENSE-014

Fleiri Fréttir

Mögulegar tafir á afhendingum miðvikudaginn 12. ágúst

Fréttir garra
07. ágú 2026

Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.

Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Lesa nánar

Lokað á frídegi verslunarmanna

Fréttir garra
28. júl 2026

Við hvetjum alla til að panta tímanlega fyrir verslunarmannahelgina! Einnig minnum við á að það er lokað í Garra frídag verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst.

Dreifing á Suðurnesin er þriðjudaginn 4. ágúst í stað mánudags.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Opið er í vöruafgreiðslu Garra alla laugardaga frá klukkan 10 til 13:00.

Lesa nánar