Fjáröflun er góð leið fyrir íþróttafélög og félagasamtök til að safna fyrir keppnisferðum, æfingaferðum og annarskonar ferðalögum. Gott skipulag á fjáröflunum skilar inn meiri tekjum og auðveldar alla vinnu fyrir umsjónarmenn. Þess vegna er gott að styðjast við eftirfarandi punkta.
Skoðið fjáröflunarvörur sem eru í boði og veljið hvaða vörur þið viljið selja.
Hver og einn úr hópnum fer og selur. Hópurinn hefur einhvern ákveðinn tíma til að selja og að þeim tíma loknum þarf að koma upplýsingum til umsjónarmanns sem sér um söluna fyrir hópinn.
Vörurnar eru pantaðar á fjaroflun@garri.is og er þá langbest að senda inn útfyllt pöntunarblað. Á því blaði þarf að fylla út upplýsingar um nafn og síma þess sem pantar, hvort varan sé sótt eða send og ef send þá hvert.
Við þurfum tvo til þrjá daga í afhendingarfrest. Við látum ykkur vita hvort umbeðinn afhendingardagur gangi upp.
Þegar vörurnar koma er mjög mikilvægt að telja allt og bera saman við reikninginn. Ef aðstæður leyfa er gott að aðgreina hver á hvað. Það gera margir þau mistök að leyfa foreldrum að stökkva beint á vörurnar þegar þær koma úr sendibílnum og taka sinn hlut. Það endar oft með því að þeir síðustu úr hópnum fá ekki sínar vörur því einhver tók rangt magn. Því er nauðsynlegt að skipuleggja afhendinguna vel og alls ekki láta hvern og einn afgreiða sig sjálfan.
Greiðslufrestur er 10 dagar. Vinsamlegast leggið inn eftir upphæð á reikningi, ekki pöntunarblaði.
Bankaupplýsingar Garra eru:
Reikn. 0301-26-000816
Kt. 670892-2129
Setja SR nr. reiknings í skýringu og senda kvittun á fjaroflun@garri.is
Ef einstaklingur er í fjáröflun er miðað við að greitt sé á staðnum þegar vörurnar eru sóttar í vöruhús Garra að Hádegismóum 1. Ef þið óskið eftir frekari upplýsingum þá sendið þið bara línu á fjaroflun@garri.is
Gangi ykkur vel :)