Nýjar vegan vörur

þriðjudagur 8. ág. 2023 kl. 13.35
Fréttir garra

Greenway opnaði sinn fyrsta veitingastað árið 1998 og sló hann í gegn á fyrsta degi, síðan þá hefur fyrirtækið verið brautryðjandi í vegan matvörum sem innblásnar eru af indverskri matargerð.

Meðal þess sem er í boði eru Shiitake- og Mexíkóborgarar, vegan hakk, grænmetisbollur og kebab strimlar. Einnig er spennandi að prufa Greenway kebab í gyros marineringu, tilvalið sem máltíð eða sem snarl í samloku eða vefju.

Fleiri Fréttir

Mögulegar tafir á afhendingum miðvikudaginn 12. ágúst

Fréttir garra
07. ágú 2026

Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.

Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Lesa nánar

Lokað á frídegi verslunarmanna

Fréttir garra
28. júl 2026

Við hvetjum alla til að panta tímanlega fyrir verslunarmannahelgina! Einnig minnum við á að það er lokað í Garra frídag verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst.

Dreifing á Suðurnesin er þriðjudaginn 4. ágúst í stað mánudags.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Opið er í vöruafgreiðslu Garra alla laugardaga frá klukkan 10 til 13:00.

Lesa nánar