Sigurvegarar í Eftirréttur Ársins & Konfektmoli Ársins 2018

föstudagur 19. okt. 2018 kl. 10.17
Fréttir garra
Keppendur EA2018

Úrslit eru ráðin í keppninni Eftirréttur Ársins & Konfektmoli Ársins 2018 sem Garri hélt í Perlunni í dag fimmtudaginn 18. október 2018. Í ár var keppnin mjög hörð keppni og mjótt á munum. Augljóst er að gæðin eru mikil hjá keppendum sem eykst með hverju árinu.

Þema keppninnar í ár var HOT STUFF þar sem hver og einn keppandi túlkaði þemað eftir sínu höfði.


Eftirréttur Ársins 2018

Eftirréttur ársins 2018 - Keppendur

Keppendur í Eftirréttur Ársins 2018


Eftirréttur ársins 2018 - Sigurvegarar

Sigurvegarar í Eftirréttur Ársins 2018
F.v. Wiktor Pálsson 3. sæti, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir 1. sæti og Chidapha Kruasaeng 2. sæti


Sigurvegari í Eftirréttur Ársins í ár var Snædís Xyza Mae Jónsdóttir frá Hótel Sögu sem hlýtur að launum námskeið hjá Chocolate Academy Cacao Barry erlendis.

Í öðru sæti lenti Chidapha Kruasaeng frá HR Konfekt og í þriðja sæti Wiktor Pálsson frá Hótel Sögu.


Konfektmoli Ársins 2018

Konfektmoli ársins 2018 - Keppendur

Keppendur í Konfektmoli Ársins 2018


Konfektmoli ársins 2018 - Sigurvegarar


Sigurvegarar í Konfektmoli Ársins 2018
F.v. Hermann Marinósson 2. sæti, Arnar Jón Ragnarsson 1. sæti og Vigdís Mi Diem Vo 3. sæti


Sigurvegari í Konfektmoli Ársins 2018 var Arnar Jón Ragnarsson frá Sandholt sem hlýtur að launum námskeið hjá Chocolate Academy Cacao Barry erlendis.

Í öðru sæti lenti Hermann Marinósson frá Hótel og Matvælaskólanum og í þriðja sæti Vigdís Mi Diem Vo frá Sandholt.


Dómarar

Eftirréttur ársins 2018 - Dómarar

Dómarar í Eftirréttur Ársins 2018.
F.v. Bjarni Viðar Þorsteinsson, Friðgeir Ingi Eiríksson og Bjarni Siguróli Jakobsson


Eftirréttur Ársins:

Yfirdómari var Friðgeir Ingi Eiríksson – Bocuse d’Or keppandi 2007

Bjarni Siguróli Jakobsson – Bocuse d’Or keppandi 2019

Bjarni Viðar Þorsteinsson – Sjávargrillið


Konfektmoli ársins 2018 - Dómarar

Dómarar í Konfektmoli ársins 2018
F.v. Sigurður Már Guðjónsson og Júlía Skarphéðinsdóttir


Konfektmoli Ársins:

Yfirdómari var Sigurður Már Guðjónsson frá Bernhöfs Bakarí.

Meðdómari var Júlía Skarphéðinsdóttir matreiðslumaður.


Keppnin fór fram í Perlunni við Út í bláinn og stóð yfir allan daginn frá kl. 10:00 – 16:00. Garri hefur um árabil haldið eftirréttakeppnina við góðan orðstír og hefur hún vakið verðskuldaða athygli í faginu, ásamt keppninni Konfektmoli Ársins sem nú er haldin samhliða.


Sjá fleiri myndir á Instagram og Facebook síðu Garra.