Fimtudaginn, 19. mars kl. 16-18
Múlaberg, Akureyri
Pinnamatur, grænmetiseldhúsið og spennandi nýjungar
Garri heimsækir Akureyri fimmtudaginn 19. mars og býður til vörukynningar á Múlabergi. Við verðum á staðnum frá kl. 16 til 18 með fjölbreytt úrval af gæðavörum. Þetta er kjörið tækifæri til að kynna sér nýjar vörur, fá fræðslu og smakka á úrvali Garra.
Komdu og sjáðu hvað Garri hefur upp á að bjóða.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og deila spennandi nýjungum!
Fyrir hverja er námskeiðið: Matreiðslufólk, nemar og annað fagfólk sem starfar við veitingagerð.
Skráning: Vinsamlegast fyllið út form hér til hliðar.