Garri hlýtur hæstu einkunn í BRCGS gæðavottun

föstudagur 20. mars 2026 kl. 11.26
Fréttir garra

Við hjá Garra erum afar stolt af því að hafa hlotið BRCGS Storage and Distribution gæðavottun með einkunnina AA, sem er hæsta mögulega einkunn í tilkynntu úttektarferli.

Vottunin staðfestir að starfsemi okkar uppfyllir strangar alþjóðlegar kröfur um matvælaöryggi, rekjanleika, hreinlæti og faglega stjórnun í allri meðhöndlun, geymslu og dreifingu vöru.

Vottunin styrkir stöðu Garra sem trausts samstarfsaðila á íslenskum markaði og endurspeglar metnað fyrirtækisins til að viðhalda framúrskarandi gæðastjórnun í allri starfsemi.

„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkur. Viðurkenningin staðfestir að við höfum byggt upp öfluga ferla og vinnum stöðugt að því að tryggja gæði og öryggi í allri starfsemi okkar,“ segir Finnur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Garra.

Við erum þakklát fyrir frábært starfsfólk og samstarfsaðila sem gera okkur kleift að viðhalda hæstu stöðlum í rekstri. Vottunin hvetur okkur til að halda áfram að gera vel og þróa og bæta þjónustu Garra enn frekar. „

BRCGS_CERT_STORAGE_LOGO_CMYK

Fleiri Fréttir

Garri á Akureyri, 19. mars

Fréttir garra
02. mar 2026

Garri heimsækir Akureyri fimmtudaginn 19. mars og býður til vörukynningar á Múlabergi.Við verðum á staðnum frá kl. 16 til 18 með fjölbreytt úrval af gæðavörum. Þetta er kjörið tækifæri til að kynna sér nýjar vörur, fá fræðslu og smakka á úrvali Garra.

Komdu og sjáðu hvað Garri hefur upp á að bjóða.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur og deila spennandi nýjungum!

Upplýsingar um námskeiðið:

📅 Fimtudaginn, 19. mars

🕑 Kl. 16:00–18:00

📍Múlaberg, Akureyri

🥕 Pinnamatur, grænmetiseldhúsið og spennandi nýjungar

👨‍🍳 Fyrir matreiðslufólk, nema og annað fagfólk í veitingagerð

⚠️ Takmarkað sætaframboð

Skráning er hafin >> Skráning á viðburð

Lesa nánar