Garri á Akureyri, 19. mars

mánudagur 2. mars 2026 kl. 13.23
Fréttir garra
Garri á Akureyri 2026

Garri heimsækir Akureyri fimmtudaginn 19. mars og býður til vörukynningar á Múlabergi.
Við verðum á staðnum frá kl. 16 til 18 með fjölbreytt úrval af gæðavörum.
Þetta er kjörið tækifæri til að kynna sér nýjar vörur, fá fræðslu og smakka á úrvali Garra.

Komdu og sjáðu hvað Garri hefur upp á að bjóða.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur og deila spennandi nýjungum!

Upplýsingar um námskeiðið:

📅 Fimtudaginn, 19. mars

🕑 Kl. 16:00–18:00

📍Múlaberg, Akureyri

🥕 Pinnamatur, grænmetiseldhúsið og spennandi nýjungar

👨‍🍳 Fyrir matreiðslufólk, nema og annað fagfólk í veitingagerð

⚠️ Takmarkað sætaframboð

Skráning er hafin >> Skráning á viðburð

Fleiri Fréttir

Breyttir opnunar- og dreifingartímar vegna árshátíðar hjá Garra

Fréttir garra
14. sep 2026

Vegna árshátíðar hjá Garra verða breytingar á opnunar- og dreifingartímum dagana 25. til 28. september. Sjá töflu hér fyrir ofan.

Starfsemi í vöruhúsi og dreifingu

Pantanir sem koma í gegnum vefverslun er hægt að sækja í vöruafgreiðslu Garra föstudaginn 25. september frá klukkan 8 til 16:00 og mánudaginn 28.september frá 12 til 15:00.

Jafnframt er opið í vöruafgreiðslu fyrir sótt pantanir sem koma í gegnum vefverslun laugardaginn 26.september frá klukkan 10 til 14:00.

Mánudaginn 28.september fara sendingar á landsbyggðina með Samskip og Flytjanda. Engin dreifing er á höfuðborgarsvæðinu þann dag.

Við biðlum til viðskiptavina að gera pöntun snemma í næstu viku, þar sem við verðum fáliðuð þessa daga.

Upplýsingar um opnunartíma fyrir sóttar pantanir má sjá hér fyrir ofan.

Skrifstofa og þjónustuborð

Skrifstofa og þjónustuborð verða lokuð frá 25. september til 28. september.

Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Til að tryggja skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.

Með fyrirfram þökk fyrir skilning og góða aðstoð, starfsfólk Garra.

Lesa nánar

Mögulegar tafir á afhendingum miðvikudaginn 12. ágúst

Fréttir garra
07. ágú 2026

Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.

Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Lesa nánar