Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins 2026

miðvikudagur 2. sept. 2026 kl. 12.56
Fréttir garra

Garri heldur keppnirnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fimmtudaginn 5. nóvember á sýnigunni Stóreldhúsið í Laugardalshöll.

Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins: Í fyrstu verðlaun er eftirréttanámskeið hjá Cacao Barry, nánari upplýsingar verða birtar síðar.

Nemaverðlaun: 50.000 kr. úttekt hjá Garra.

Keppnisrétt hafa þau sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik eru metin sérstaklega.

Þema ársins er París 1920.

Konfektmoli Thumbnail

Skylduhráefni

Súkkulaði frá Cacao Barry:

  • Cacao Barry Mi-Amére 58% – Djúpt dökkt súkkulaði með mildum ristuðum kakótónum og fíngerðum, örlítið súrum jurtakenndum undirtón.

Val er á milli tvegga púrra frá Capfruit:

  • Capfruit Apríkósu Puré – Púrran er framleidd úr Bergeron-apríkósum frá Rhône-dalnum í Frakklandi, afbrigði sem er sérstaklega metið í sætabrauðsgerð fyrir náttúrulegt jafnvægi milli sætu og sýru. Apríkósurnar hafa ríkan ilm, fallegan appelsínugulan lit og hreint ávaxtabragð sem nýtur sín vel í eftirréttum þar sem ferskleiki og áferð skipta máli. EÐA:
  • Capfruit Grænepla Puré - Ávaxtapúrra úr grænum „Granny Smith“ eplum sem býður upp á einstaklega ferskt og svalandi bragð, með léttum sýrðum tónum og fallegum ljósgrænum pastelblæ. Eplin eru ræktuð aðeins nokkra kílómetra frá vinnslustöð Capfruit, í hlíðum Rhône-dalsins í Frakklandi.

Notkun á súkkulaði eða púrrum frá öðrum framleiðendum er ekki leyfileg í keppninni.

eftirr

Skráning

Skráning fyrir Efirréttur ársins 2026

Skráning fyrir Konfektmoli ársins 2026

Grunnhráefnispakki til æfinga fylgir skráningu og greiðsla á 5.000 kr. staðfestingargjaldi. Gjaldið endurgreiðist þeim sem mæta samkvæmt tímaplani á keppnisstað. Staðfestingargjald skal leggja inn á reikning: 0301-26-000817; kt. 670892-2129.

Skráningarfrestur er til og með 20. október 2026.

Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Eftirréttur ársins

Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Konfektmoli ársins

Nánari upplýsingar veitir Silja í síma 858-3023 eða silja@garri.is

Gangi ykkur vel!

Fleiri Fréttir

Breyttir opnunar- og dreifingartímar vegna árshátíðar hjá Garra

Fréttir garra
14. sep 2026

Vegna árshátíðar hjá Garra verða breytingar á opnunar- og dreifingartímum dagana 25. til 28. september. Sjá töflu hér fyrir ofan.

Starfsemi í vöruhúsi og dreifingu

Pantanir sem koma í gegnum vefverslun er hægt að sækja í vöruafgreiðslu Garra föstudaginn 25. september frá klukkan 8 til 16:00 og mánudaginn 28.september frá 12 til 15:00.

Jafnframt er opið í vöruafgreiðslu fyrir sótt pantanir sem koma í gegnum vefverslun laugardaginn 26.september frá klukkan 10 til 14:00.

Mánudaginn 28.september fara sendingar á landsbyggðina með Samskip og Flytjanda. Engin dreifing er á höfuðborgarsvæðinu þann dag.

Við biðlum til viðskiptavina að gera pöntun snemma í næstu viku, þar sem við verðum fáliðuð þessa daga.

Upplýsingar um opnunartíma fyrir sóttar pantanir má sjá hér fyrir ofan.

Skrifstofa og þjónustuborð

Skrifstofa og þjónustuborð verða lokuð frá 25. september til 28. september.

Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Til að tryggja skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.

Með fyrirfram þökk fyrir skilning og góða aðstoð, starfsfólk Garra.

Lesa nánar

Mögulegar tafir á afhendingum miðvikudaginn 12. ágúst

Fréttir garra
07. ágú 2026

Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.

Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Lesa nánar

Lokað á frídegi verslunarmanna

Fréttir garra
28. júl 2026

Við hvetjum alla til að panta tímanlega fyrir verslunarmannahelgina! Einnig minnum við á að það er lokað í Garra frídag verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst.

Dreifing á Suðurnesin er þriðjudaginn 4. ágúst í stað mánudags.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Opið er í vöruafgreiðslu Garra alla laugardaga frá klukkan 10 til 13:00.

Lesa nánar