Dómarar í Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins 2026

fimmtudagur 15. okt. 2026 kl. 11.40
Fréttir garra

Garri heldur keppnirnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fimmtudaginn 5. nóvember á sýningunni Stóreldhúsið í Laugardalshöll.

Sköpunargleði, fagkunnátta og metnaður mætast í keppnunum en mat á keppnisverkum er í höndum reynslumikils fagfólks sem hefur skarað fram úr á sínu sviði. Dómarar ársins búa yfir fjölbreyttri reynslu úr matreiðslu, konditori, bakstri og veitingarekstri og þekkja vel þær kröfur sem gerðar eru þegar kemur að gæðum, framsetningu og bragðsamsetningu.

Í keppninni er dæmt eftir fimm matsatriðum: Uppskriftaskil og skýrleika (10%), þar sem nákvæmni og greinargóð vinnulýsing skiptir máli; samsetningu innihaldsefna og tengingu við þema (25%); bragði og áferð (35%); framsetningu og nýsköpun (20%); og loks faglegum vinnubrögðum, hreinlæti og skipulagi (10%).

Komdu og njóttu dagsins þar sem sköpun, ástríða og sæta lífið mætast ! ✨

Enn er opið fyrir skráningu í Eftirrétt ársins og Konfektmola ársins

📍 Staður: Stóreldhúsið Í Laugardalshöll
🕣 Hvenær: Fimmtudagurinn 5. nóvember

✨ Úrslit: Klukkan 17:00

Eftirréttur ársins sigurvegari 2025

Yfirdómari í Eftirréttur ársins

Hrefna Sætran er yfirdómari í Eftirréttur ársins árið 2026. Hún er einn þekktasti matreiðslumeistari landsins og hefur um árabil verið leiðandi afl í íslenskri veitingamenningu. Hún hefur byggt upp og stýrt nokkrum af þekktustu veitingastöðum landsins, þar á meðal Fiskmarkaðnum, og er þekkt fyrir metnað sinn, sköpunargáfu og ástríðu fyrir úrvals hráefnum.

Með einstaka hæfni til að sameina íslenskar matarhefðir og alþjóðleg áhrif hefur Hrefna áunnið sér virðingu jafnt meðal fagfólks sem matgæðinga. Auk starfa sinna sem veitingahúsaeigandi hefur hún komið að útgáfu matreiðslubóka, miðlun þekkingar og kynningu íslenskrar matarmenningar.

Hrefna er þekkt fyrir kraftmikla framkomu, frumkvöðlahugsun og hæfileika til að veita öðrum innblástur. Hún leggur ríka áherslu á gæði, fagmennsku og upplifun gesta og hefur þannig markað djúp spor í íslenskan veitingaheim.

Hrefna Sætran_

Dómari í Eftirréttur ársins

Axel Þorsteinsson er bakari, konditormeistari og frumkvöðull með yfir tuttugu ára reynslu úr faginu. Hann hefur starfað víða um heim, meðal annars í Miðausturlöndum, London, Mílanó og New York, þar sem hann hefur aflað sér fjölbreyttrar reynslu og þekkingar á bakstri, eftirréttagerð og rekstri.

Á ferli sínum hefur Axel tekið þátt í fjölda fagkeppna bæði á Íslandi og erlendis, með góðum árangri í Evrópu og Dubai. Hann sigraði í keppninni Eftirréttur ársins árið 2015 og hefur einnig keppt fyrir Íslands hönd á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars í Global Pastry Chefs Challenge.

Í dag er Axel meðeigandi Hygge Coffee & Micro Bakery, sem hefur á undanförnum árum skapað sér sterka sérstöðu . Þar sameinar hann vandað handverk, hágæða hráefni og nútímalega sýn á bakstur og sælkeravörur í hlýlegu og notalegu umhverfi.

Axel er þekktur fyrir fagmennsku, frumleika og djúpan skilning á jafnvægi bragða, áferðar og framsetningar. Með víðtæka reynslu úr rekstri og þróun nýrra vara kemur hann með dýrmæta þekkingu inn í dómnefndina.

Axel

Dómari í Eftirréttur ársins

Andrés Björgvinsson er einn af efnilegustu matreiðslumönnum landsins og starfar í dag hjá Torfhús Retreat. Hann er jafnframt meðlimur í íslenska kokkalandsliðinu, sem fer á heimsmeistaramótið í matreiðslu í Lúxemborg núna í nóvember.

Andrés vakti snemma athygli fyrir hæfileika sína þegar hann vann keppnina Nemi ársins 2023 og síðan sigraði hann í keppninni Arctic Young Chef 2024. Hann hefur einnig keppt fyrir Íslands hönd í alþjóðlegum keppnum, þar á meðal í Global Chef Challenge 2025, þar sem hann sýndi fram á mikla fagmennsku, metnað og tæknilega færni.

Árið 2025 var sérstaklega árangursríkt hjá Andrési. Þá sigraði hann Grænmetiskokkur ársins og Eftirréttur ársins , auk þess var hann Íslandsmeistari í matreiðslu á Íslandsmóti nema- og ungsveina í veitingagreinum.

Þessi árangur staðfestir fjölbreytta hæfileika hans, allt frá skapandi þróun grænmetisrétta til nákvæmrar og glæsilegrar eftirréttagerðar.

Með ferskar hugmyndir, nákvæm vinnubrögð og óbilandi metnað er Andrés Björgvinsson skínandi dæmi um nýja kynslóð íslenskra matreiðslumanna sem mun án efa halda áfram að setja mark sitt á íslenska matargerð á komandi árum.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar skipað sér í hóp fremstu matreiðslumanna landsins og kemur að dómarastörfum með ferska sýn, víðtæka reynslu úr keppnisumhverfinu og skýran skilning á þeim þáttum sem aðgreina góða eftirrétti frá þeim allra bestu.

Andrés Björgvins

Dómari í Konfektmoli ársins

Vigdís Mi Diem Vo er metnaðarfullur konditor og bakari sem hefur vakið athygli fyrir listræna nálgun í eftirrétta- og konfektgerð þar sem nákvæmni, fagmennska og skapandi bragðsamsetningar fara saman. Hún lærði fagið hjá Sandholtsbakaríi og hefur starfað víða innan íslenska veitinga- og bakstursgeirans síðustu ár. Í dag er Vigdís einn eiganda Kjarr Restaurant og Lár Brewery á Kirkjubæjarklaustri, þar hefur hún nýtt sköpunargáfu sína og fagþekkingu til að þróa glæsilegt vöruúrval.

Vigdís hefur tekið virkan þátt í fagkeppnum um árabil og náð eftirtektarverðum árangri í keppninni Konfektmoli ársins. Þar vann hún sig jafnt og þétt upp raðirnar, hlaut fyrst 3. sæti og síðar 2. sæti áður en hún stóð uppi sem sigurvegari árið 2021 og aftur árið 2025.

Auk þess að keppa sjálf hefur Vigdís setið í dómnefndum fagkeppna og fest sig í sessi meðal fremstu konditora landsins. Sem fyrrum sigurvegari og reyndur fagmaður kemur hún með dýrmæta innsýn í þá þætti sem skipta mestu máli við mat á konfekti, allt frá handverki og framsetningu til jafnvægis bragða og frumleika

Vigdís Vo_

Dómari í Konfektmoli ársins

Sigurður Laufdal er einn fremsti matreiðslumeistari Íslands og hefur vakið athygli bæði hérlendis og erlendis fyrir framúrskarandi árangur, sköpunargáfu og metnað í matargerð. Hann hóf ungur störf í faginu og hefur síðan byggt upp glæsilegan feril á nokkrum virtustu veitingastöðum Norðurlanda, þar á meðal Michelin-veitingastöðunum Geranium í Kaupmannahöfn og Olo í Helsinki.

Sigurður hlaut titilinn Kokkur ársins árið 2011 og hefur tvisvar keppt fyrir Íslands hönd í hinni virtu alþjóðlegu matreiðslukeppni Bocuse d’Or, þar sem hann náði framúrskarandi árangri og vakti verðskuldaða athygli fyrir hugmyndaríka og tæknilega vandaða matargerð. Árið 2014 sigraði hann í keppninni Eftirréttur ársins.

Sem frumkvöðull og veitingamaður hefur Sigurður skapað eigin sérstöðu með veitingastaðnum Lólu, þar sem áhersla er lögð á einstaka matarupplifun, gæðahráefni og skapandi nálgun sem sameinar alþjóðleg áhrif og íslenskar rætur.

Með fagmennsku, hugmyndaauðgi og óbilandi metnaði hefur hann skipað sér í fremstu röð íslenskra matreiðslumanna og er mikilvæg fyrirmynd fyrir komandi kynslóðir kokka.

Siggi_Lauf_Lóla (1)

Fleiri Fréttir

Breyttir opnunar- og dreifingartímar vegna árshátíðar hjá Garra

Fréttir garra
14. sep 2026

Vegna árshátíðar hjá Garra verða breytingar á opnunar- og dreifingartímum dagana 25. til 28. september. Sjá töflu hér fyrir ofan.

Starfsemi í vöruhúsi og dreifingu

Pantanir sem koma í gegnum vefverslun er hægt að sækja í vöruafgreiðslu Garra föstudaginn 25. september frá klukkan 8 til 16:00 og mánudaginn 28.september frá 12 til 15:00.

Jafnframt er opið í vöruafgreiðslu fyrir sótt pantanir sem koma í gegnum vefverslun laugardaginn 26.september frá klukkan 10 til 14:00.

Mánudaginn 28.september fara sendingar á landsbyggðina með Samskip og Flytjanda. Engin dreifing er á höfuðborgarsvæðinu þann dag.

Við biðlum til viðskiptavina að gera pöntun snemma í næstu viku, þar sem við verðum fáliðuð þessa daga.

Upplýsingar um opnunartíma fyrir sóttar pantanir má sjá hér fyrir ofan.

Skrifstofa og þjónustuborð

Skrifstofa og þjónustuborð verða lokuð frá 25. september til 28. september.

Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Til að tryggja skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.

Með fyrirfram þökk fyrir skilning og góða aðstoð, starfsfólk Garra.

Lesa nánar