Hlökkum til að sjá þig á Stóreldhúsinu

miðvikudagur 14. okt. 2026 kl. 10.40
Fréttir garra
Mynd_KH og A

Keppnirnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fara fram á Stóreldhússýningunni fimmtudaginn 5. nóvember. Þar gefst gestum einstakt tækifæri til að fylgjast með framúrskarandi fagfólki sýna hæfni sína, sköpunargáfu og ástríðu fyrir faginu. Keppnirnar eru ávallt hápunktur sýningarinnar og veita innsýn í nýjustu strauma og stefnur í eftirrétta- og konfektgerð. Úrslitin verða tilkynnt klukkan 17:00 sama dag.

Kokkarnir í Garra framreiða úrval spennandi vara úr vöruúrvali fyrirtækisins.

Tækifæri til að smakka nýjungar og fá innblástur og sjá hvernig hægt er að nýta vörurnar á skapandi, bragðgóðan og hagkvæman hátt.

Mekka Wines & Spirits verða með kynningu á völdum vörum úr sínu spennandi úrvali. Gestir fá tækifæri til að kynnast nýjungum, fræðast um framleiðendurna á bak við vörurnar og ræða þróun og strauma í heimi drykkja með sérfræðingum Mekka.

Kíktu við á básnum, bragðaðu á nýjungum og hittu sérfræðinga frá Garra og Mekka Wines & Spirits í lifandi og skemmtilegu umhverfi.

Hlökkum til að sjá þig.

Boðskort á Stóreldhúsið (2)

Fleiri Fréttir

Breyttir opnunar- og dreifingartímar vegna árshátíðar hjá Garra

Fréttir garra
14. sep 2026

Vegna árshátíðar hjá Garra verða breytingar á opnunar- og dreifingartímum dagana 25. til 28. september. Sjá töflu hér fyrir ofan.

Starfsemi í vöruhúsi og dreifingu

Pantanir sem koma í gegnum vefverslun er hægt að sækja í vöruafgreiðslu Garra föstudaginn 25. september frá klukkan 8 til 16:00 og mánudaginn 28.september frá 12 til 15:00.

Jafnframt er opið í vöruafgreiðslu fyrir sótt pantanir sem koma í gegnum vefverslun laugardaginn 26.september frá klukkan 10 til 14:00.

Mánudaginn 28.september fara sendingar á landsbyggðina með Samskip og Flytjanda. Engin dreifing er á höfuðborgarsvæðinu þann dag.

Við biðlum til viðskiptavina að gera pöntun snemma í næstu viku, þar sem við verðum fáliðuð þessa daga.

Upplýsingar um opnunartíma fyrir sóttar pantanir má sjá hér fyrir ofan.

Skrifstofa og þjónustuborð

Skrifstofa og þjónustuborð verða lokuð frá 25. september til 28. september.

Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Til að tryggja skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.

Með fyrirfram þökk fyrir skilning og góða aðstoð, starfsfólk Garra.

Lesa nánar

Mögulegar tafir á afhendingum miðvikudaginn 12. ágúst

Fréttir garra
07. ágú 2026

Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.

Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Lesa nánar