
Vegna árshátíðar hjá Garra verða breytingar á opnunar- og dreifingartímum dagana 25. til 28. september.
Vöruhús og dreifing verður opin fyrir pantanir sem koma í gegnum vefverslun, enn við biðlum til viðskiptavina að gera pöntun snemma í næstu viku, þar sem við verðum fáliðuð þessa daga.
Skrifstofa og þjónustuborð verða lokuð frá 25. september til 28. september.
Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Til að tryggja skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.
Með fyrirfram þökk fyrir skilning og góða aðstoð, starfsfólk Garra.
Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.
Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.
Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra
Við hvetjum alla til að panta tímanlega fyrir verslunarmannahelgina! Einnig minnum við á að það er lokað í Garra frídag verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst.
Dreifing á Suðurnesin er þriðjudaginn 4. ágúst í stað mánudags.
Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra
Opið er í vöruafgreiðslu Garra alla laugardaga frá klukkan 10 til 13:00.