Garri hefur ráðið Finn Gunnarsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Finnur hefur starfað sem fjármálastjóri Garra frá árinu 2022 og verið hluti af stjórnendateymi fyrirtækisins á þeim tíma.
Finnur mun áfram gegna starfi fjármálastjóra samhliða nýju hlutverki sínu sem framkvæmdastjóri. Hann þekkir starfsemi Garra afar vel og hefur gegnt lykilhlutverki í rekstri og þróun félagsins undanfarin ár.
Magnús R. Magnússon, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra félagsins um árabil, lætur nú af daglegri stjórnun. Hann mun áfram starfa sem stjórnarformaður Garra og sinna sértækum verkefnum sem tengjast stefnumótun og framtíðarfyrirkomulagi félagsins.
Starfsemi Garra heldur áfram óbreytt og félagið mun áfram leggja áherslu á áframhaldandi uppbyggingu og þróun í nánu samstarfi við viðskiptavini og samstarfsaðila.
English
Garri has appointed Finnur Gunnarsson as the company’s new Managing Director. Finnur has served as Garri’s Chief Financial Officer since 2022 and has been a member of the company’s management team during that time.
Finnur will continue to serve as CFO alongside his new role as Managing Director. He has extensive knowledge of Garri’s operations and has played a key role in the company’s operations and development in recent years.
Magnús R. Magnússon, who has served as Managing Director for many years, will now step down from the day-to-day management of the company. He will continue to serve as Chairman and focus on specific projects related to the company’s strategy and future development.
Garri’s operations will continue unchanged, and the company will maintain its focus on continued development and growth in close cooperation with customers and partners.
Garri heimsækir Akureyri fimmtudaginn 19. mars og býður til vörukynningar á Múlabergi.Við verðum á staðnum frá kl. 16 til 18 með fjölbreytt úrval af gæðavörum. Þetta er kjörið tækifæri til að kynna sér nýjar vörur, fá fræðslu og smakka á úrvali Garra.
Komdu og sjáðu hvað Garri hefur upp á að bjóða.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og deila spennandi nýjungum!
Upplýsingar um námskeiðið:
📅 Fimtudaginn, 19. mars
🕑 Kl. 16:00–18:00
📍Múlaberg, Akureyri
🥕 Pinnamatur, grænmetiseldhúsið og spennandi nýjungar
👨🍳 Fyrir matreiðslufólk, nema og annað fagfólk í veitingagerð
⚠️ Takmarkað sætaframboð
Skráning er hafin >> Skráning á viðburð