Garri nær jákvæðum árangri í sjálfbærnimarkmiðum fyrir árið 2025

þriðjudagur 31. mars 2026 kl. 09.20
Fréttir garra

Garri hefur náð jákvæðum framförum á flestum lykilsviðum sjálfbærni markmiða, meðal annars í bættri flokkun, minni losun í umfangi 1 og ánægju starfsmanna og viðskiptavina. Áhersla á umhverfi, mannauð og ábyrga starfshætti skilar sér í mælanlegum árangri sem styrkir bæði rekstur og þjónustu við viðskiptavini.

Þessi árangur er mikilvægur þar sem hann styrkir umhverfisábyrgð fyrirtækisins, eykur gagnsæi og tryggir aukna og ábyrga þjónustu við viðskiptavini og samfélagið í heild.

Flokkun úrgangs heldur áfram að aukast

Flokkun jókst verulega á milli ára og fór í 87,2% árið 2025 samanborið við 79,9% árið áður, sem endurspeglar markvissa og árangursríka vinnu í umhverfismálum. Þetta er mikilvægur áfangi í stefnu Garra um að draga úr sóun, minnka umhverfisáhrif og bæta innri ferla í daglegum rekstri.

Kolefnislosun er á réttri leið

Losun í umfangi 1, sem nær til beinnar eldsneytisnotkunar í rekstri, lækkaði úr 46,3 tCO₂ í 44,2 tCO₂. Losun í umfangi 2 jókst lítillega vegna aukinnar starfsemi, en hlutfall raf- og tengiltvinnbíla í bílaflota Garra helst áfram 70% og í takt við markmið.

Garri_Lager--12

Áhersla á vellíðan, öryggi og jafnrétti

Á sviði mannauðs og öryggis var lögð áhersla á heilsu, þjálfun og framþróun starfsfólks. Starfsánægja mældist mjög góð, bæði í VR-könnun og Moodup púlsmælingum. Áhersla var á fjölbreytta fræðslu og forvarnarvinnu, heilsumánuður var haldinn í febrúar, öryggisvika í október og unnin var ítarleg fræðslugreining sem lagði grunn að fræðsluáætlun ársins 2026.

Óútskýrður launamunur kynjanna mældist undir 2%, í samræmi við kröfur jafnlaunavottunar.

Ábyrg starfsemi og samfélagsstuðningur

Garri hlaut á dögunum alþjóðlega gæðavottun; BRCGS Storage and Distribution gæðavottun með einkunnina AA, sem er hæsta mögulega einkunn sem fyrirtæki getur fengið í tilkynntri úttekt.

Viðskiptavinir sýna áfram mikið traust

Ánægja viðskiptavina mældist 97% í árlegri könnun Garra og NPS-stuðull var 76, sem telst framúrskarandi í alþjóðlegum samanburði. Vörunýjungum fjölgaði um 3,5% og framboð umhverfisvottaðra hreinlætisvara var aukið, sem og fræðsla og aðgengi að upplýsingum fyrir viðskiptavini.

Skrifstofa_Garri_Sept2025-38

Horft til næsta árs

Niðurstöðurnar sýna að Garri hefur náð góðum árangri á stuttum tíma og byggir áfram á sterkum grunni í sjálfbærni. Við horfum bjartsýn fram á árið 2026 með skýrum og metnaðarfullum markmiðum í sjálfbærni. Lögð verður áhersla á að viðhalda flokkun úrgangs yfir 85%, draga áfram úr losun og auka hlutdeild vistvænna bíla. Í mannauðsmálum verður mikilvægt að efla vellíðan, styrkja öryggismenningu og auka starfsánægju enn frekar. Áhersla verður einnig á að efla ábyrga upplýsingagjöf, bæta samstarf í aðfangakeðjunni og tryggja áfram framúrskarandi þjónustu þar sem áreiðanleiki, heiðarleiki og ástríða skipa lykilhlutverk.

Þá vinnur fyrirtækið að því að bæta aðgengi að þjónustu og þróa lausnir sem styðja við stafrænar lausnir. Með þessum markmiðum leitast fyrirtækið við að stuðla að ábyrgum viðskiptaháttum og jákvæðum áhrifum á viðskiptavini og samfélagið í heild.

Lager_Garri_Sept2025-31

Fleiri Fréttir

Annan í Hvítasunnu er lokað

Fréttir garra
20. maí 2026

Lokað verður í Garra mánudaginn 25. maí, annan í Hvítasunnu. Því færist dreifing á Suðurnesin frá mánudegi yfir á þriðjudag.

Nánari upplýsingar um dreifingu:

Þriðjudaginn, 26. maí og fimmtudaginn 28. maí: Dreifing á SuðurnesinMiðvikudaginn, 27. maí: Dreifing á Selfoss, Hveragerði og nágrenniFöstudaginn, 29. maí: Dreifing á Selfoss og Hveragerði

Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Fyrir skjóta og skilvirka afgreiðslu mælum við með að nota vefverslun Garra.

Lesa nánar

Fyrirtæki ársins 2026!

Fréttir garra
15. maí 2026

Garri fékk viðurkenningu frá VR fyrir að vera eitt af “fyrirtækjum ársins” í flokki stórra fyrirtækja.

Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er viðhorf starfsfólks til lykilþátta í starfsumhverfi vinnustaðarins metið. Könnunin er vettvangur fyrir félagsfólk til að koma skoðunum sínum á framfæri og láta stjórnendur vita af því sem vel er gert og hvað betur má gera.

Þær sýna ekki einungis hver staða fyrirtækisins er í augum starfsmanna heldur einnig hver staða þess er í samanburði við önnur fyrirtæki á vinnumarkaði.

Heildareinkunn fyrirtækja er reiknuð út frá viðhorfi starfsfólks til ólíkra þátta starfsumhverfis. Spurt er um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju, og fleira.

Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu, enda ærin ástæða til að vekja athygli á frammistöðu þeirra.

Við hjá Garra erum gríðarlega stolt af þessum árangri og þeirri vegferð sem við erum á. Niðurstöðurnar gefa okkur tækifæri til að vita hvort og hvar úrbóta er þörf sem og hvetur okkur áfram að gera vel.

Lesa nánar

Sosa netnámskeið 21. maí

Fréttir garra
11. maí 2026
Lesa nánar