Skráning: Eftirréttur Ársins og Konfektmoli Ársins 2025

þriðjudagur 2. sept. 2025 kl. 09.01
Fréttir garra

Garri heldur keppnina Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins þriðjudaginn 28. október á La Primavera í Hörpu og skráning er hafin.

Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins: Í fyrstu verðlaun er eftirréttanámskeið hjá Cacao Barry í Evrópu. Vinningshafi getur sótt námskeið til 30. júní árið 2026.

Nemaverðlaun: 50.000 kr. úttekt hjá Garra.

Keppnisrétt hafa þau sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik eru metin sérstaklega.

Þema ársins er karnival

Skylduhráefni fyrir Eftirréttur ársins & Konfektmoli ársins eru þrjú

  • Cacao Barry Lactée Supérieure 38% – Mjólkursúkkulaði sem er einstaklega fjölhæft í notkun.
  • Capfruit Fruit Purée d’Ananas - Frosið ananasmauk sem inniheldur engin aukaefni, hvorki litar- né bragðefni, aðeins hreinan, náttúrulegan ávöxt. Bjartur litur og sætt bragð.
  • NOROHY Vanilla Beans Paste - Úr hreinum vanillubaunum frá Madagaskar. Djúpt, ilmandi bragð. Engin aukefni eða bragðbætiefni.

Notkun á súkkulaði, púrrum og vanillu frá öðrum framleiðendum er ekki leyfileg í keppninni.

Skráning: Lokað er fyrir skráningu í Eftirréttur ársins enn velkomið að setja á biðlista með því að senda póst á hulda@garri.is

Skráning: Konfektmoli ársins 2025

Grunnhráefnispakki til æfinga fylgir skráningu og greiðslu á 5.000 kr. staðfestingargjaldi. Gjaldið endurgreiðist þeim sem mæta samkvæmt tímaplani á keppnisstað. Staðfestingargjald skal leggja inn á reikning: 0301-26-000817; kt. 670892-2129.

Skráningarfrestur er til og með 20. október 2025.

Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Eftirréttur ársins

Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Konfektmoli ársins

Nánari upplýsingar veitir Hulda í síma 858-0333 eða hulda@garri.is

Gangi ykkur vel!

Garri-Konfektmoli-202433