Breyttir opnunar- og dreifingartímar vegna árshátíðar hjá Garra

Styrkir

Garri leggur áherslu á að styðja verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið og umhverfið. Við horfum sérstaklega til verkefna sem stuðla að samfélagslegri ábyrgð, sjálfbærni, velferð og öflugu barna- og unglingastarfi.

Til að tryggja að allar styrkbeiðnir fari í rétt ferli tökum við eingöngu við umsóknum í gegnum umsóknarformið hér að neðan. Ekki er tekið við styrkbeiðnum í gegnum síma eða með tölvupósti til starfsmanna Garra.

Við óskum eftir að verkefninu eða málefninu sem sótt er um styrk fyrir sé lýst á skýran og greinargóðan hátt.

Umsóknir eru teknar fyrir mánaðarlega og aðeins þeim umsækjendum svarað sem hljóta styrkveitingu.