Sosa námskeið í Garra - námskeið þann 11. júní 2024

Sosa námskeið - minni sykur og meira bragð

Þriðjudagurinn 11.júní 2024

Tímasetning 14:00 til 16:00

Þriðjudaginn 11. júní mun Albert Jofre, kokkur hjá Sosa, kynna vöruúrval Sosa á námskeiði hjá Garra. Albert notar vörur sem eru nú þegar í vöruúrvali Garra ásamt því að kynna fyrir okkur nokkrar nýjungar, þar á meðal hans uppáhaldsvöru, Flexfibre.

Albert Jofre á farsælan feril að baki en hann hefur starfað í nokkrum af helstu bakaríum Barselóna. Hjá Sosa nýtir hann fjölbreytta reynslu sína til þjálfunar og speglast ástríða hans á matargerð í innblæstri sem hann veitir viðskiptavinum.

Sosa er leiðandi í framleiðslu á úrvalshráefnum fyrir matargerð og bakstur. Fjórar grundvallarreglur liggja að baki þróunar hjá Sosa; meiri áferð, meira bragð, minni fita og minni sykur.

Fyrir matreiðslufólk, bakara, nema og annað fagfólk sem starfar í veitingageiranum.

Takmarkað sætaframboð • Námskeiðið fer fram á ensku

Námskeiðið fer fram í húsnæði Garra að Hádegismóum 1, 110 Reykjavík á 4.hæð.