Þjónustukönnun Garra

þriðjudagur 20. maí 2025 kl. 10.20
Fréttir garra
Garri starfsmenn

Næstu daga verður send þjónustukönnun til viðskiptavina Garra þar sem markmiðið er að geta greint hvað gengur vel og hvar við getum bætt okkur. Slík endurgjöf er ómetanleg þegar kemur að því að þróa betri lausnir og veita þjónustu sem mætir raunverulegum þörfum viðskiptavina.

Könnunin sem send er í tölvupósti er framkvæmd af fyrirtækinu Prósent sem leggur mikla áherslu á trúnað og örugga meðferð persónuupplýsinga. Prósent verður okkur jafnframt innan handar við að draga út þrjá heppna þátttakendur sem hljóta veglega gjafakörfu.

Það tekur um 2 til 4 mínútur að svara könnuninni og er það okkur ákaflega mikilvægt að fá sem besta svörun.

Við þökkum þér kærlega fyrir að gefa þér tíma til að svara könnuninni. Þín þátttaka skiptir máli og hjálpar okkur að gera betur fyrir þig og alla okkar viðskiptavini.

Fleiri Fréttir

Mögulegar tafir á afhendingum miðvikudaginn 12. ágúst

Fréttir garra
07. ágú 2026

Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.

Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Lesa nánar

Lokað á frídegi verslunarmanna

Fréttir garra
28. júl 2026

Við hvetjum alla til að panta tímanlega fyrir verslunarmannahelgina! Einnig minnum við á að það er lokað í Garra frídag verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst.

Dreifing á Suðurnesin er þriðjudaginn 4. ágúst í stað mánudags.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Opið er í vöruafgreiðslu Garra alla laugardaga frá klukkan 10 til 13:00.

Lesa nánar