Núna er í gangi könnun þar sem markmiðið er að bæta þjónustu okkar í Garra. Könnunin sem send er í tölvupósti er framkvæmd af fyrirtækinu Prósent sem leggur mikla áherslu á trúnað og örugga meðferð persónuupplýsinga.

Eftir að könnun lýkur mun Prósent vera okkur innan handar við að draga út þrjá heppna þátttakendur sem hljóta veglega gjafakörfu.
Það tekur um 2 til 4 mínútur að svara könnuninni og er það okkur ákaflega mikilvægt að fá sem besta svörun.
Við þökkum viðskiptavinum kærlega fyrir þátttökuna og fyrir að hjálpa okkur að bæta þjónustuna.
Vegna árshátíðar hjá Garra verða breytingar á opnunar- og dreifingartímum dagana 25. til 28. september.
Starfsemi í vöruhúsi og dreifinguVöruhús og dreifing verður opin fyrir pantanir sem koma í gegnum vefverslun, enn við biðlum til viðskiptavina að gera pöntun snemma í næstu viku, þar sem við verðum fáliðuð þessa daga.
Skrifstofa og þjónustuborðSkrifstofa og þjónustuborð verða lokuð frá 25. september til 28. september.
Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Til að tryggja skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.
Með fyrirfram þökk fyrir skilning og góða aðstoð, starfsfólk Garra.
Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.
Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.
Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra