Fyrirmyndarfyrirtæki árið 2025

fimmtudagur 12. júní 2025 kl. 08.11
Fréttir garra

Við hjá Garra erum afar stolt af því að vera eitt af Fyrirmyndarfyrirtækjum ársins 2025 samkvæmt niðurstöðum VR-könnunarinnar. Þessi viðurkenning endurspeglar sterkan starfsanda, trausta stjórnun og framúrskarandi vinnuaðstæður þar sem áhersla er lögð á virðingu, jafnrétti og sveigjanleika.

Við lítum á þessa viðurkenningu sem hvatningu til að halda áfram að bæta okkur. Við viljum skapa starfsumhverfi sem styður við vöxt, vellíðan og árangur og við höldum ótrauð áfram í þá átt. Þessi viðurkenning skiptir okkur miklu máli þar sem það er starfsfólkið sem leggur mat á vinnustaðinn sinn.

Í könnun VR er lagt mat á níu lykilþætti sem varða meðal annars starfsanda, upplýsingaflæði, launakjör, jafnfrétti, stjórnun og þróun í starfi. Að ná framúrskarandi árangri á þessum sviðum krefst markvissrar vinnu og virkrar þátttöku allra innan fyrirtækisins. Því er þetta jafnframt staðfesting á sameiginlegum árangri og liðsanda sem skilar sér í öflugu og heilbrigðu vinnuumhverfi.

garri-fyrirmyndar-2025-larett

Fleiri Fréttir

Mögulegar tafir á afhendingum miðvikudaginn 12. ágúst

Fréttir garra
07. ágú 2026

Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.

Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Lesa nánar

Lokað á frídegi verslunarmanna

Fréttir garra
28. júl 2026

Við hvetjum alla til að panta tímanlega fyrir verslunarmannahelgina! Einnig minnum við á að það er lokað í Garra frídag verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst.

Dreifing á Suðurnesin er þriðjudaginn 4. ágúst í stað mánudags.

Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra

Opið er í vöruafgreiðslu Garra alla laugardaga frá klukkan 10 til 13:00.

Lesa nánar