
Fimmtudaginn 11.janúar var haldið námskeiðið Grænmetiseldhúsið í Garra þar sem Paul Florizone eigandi Greenway og Peter De Wandel matreiðslumeistari hjá Ardo kynntu nýjungar og komu með hugmyndir af grænmetisréttum fyrir fagfólk.
Paul Florizone kynntist grænmetismatargerð árið 1996 á ferðalagi um Indland. Greenway opnaði sinn fyrsta veitingastað í Gent árið 1998 og sló strax í gegn. Síðan þá hefur fyrirtækið verið brautryðjandi í grænmetismatvörum sem innblásnar eru af indverskri matargerð.

Greenway notar vörur frá Ardo í uppskriftum sínum og því kom Peter De Wandel, matreiðslumeistari hjá Ardo og tók þátt í námskeiðinu. Ardo er stöðugt að koma með nýjungar í vöruframboði og uppskriftum sem stuðla að heilbrigðu líferni.
Ásamt Paul Florizone og Peter De Wandel mættu þær Heidi Goovaerts frá Ardo og Nicole Wille frá Greenway og voru með kynningu á fyrirtækjunum.


Eftir námskeiðið var hlaðborð þar sem þátttakendur á námskeiðinu fengu að smakka þá rétti sem Paul og Peter höfðu kynnt og undirbúið með hjálp Andrésar og Svavars sölumanna Garra.








Lokað er í Garra á þjóðhátíðardaginn 17. júní, því viljum við hvetja alla til þess að panta tímanlega.
Upplýsingar um dreifinguMánudagur, 15. júní:
Hefðbundin dreifing.
Þriðjudagur, 16. júní:
Hefðbundin dreifing, auk þess sem dreifing miðvikudags færist yfir á þennan dag (Selfoss, Hveragerði, Stokkseyri, Eyrarbakki og Þorlákshöfn)
Miðvikudagur, 17. júní:
LOKAÐ
Fimmtudagur, 18. júní og föstudagur, 19. júní:
Hefðbundin dreifing
Við hvetjum viðskiptavini til þess að gera pantanir tímanlega, fyrir skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.
Lokað verður í Garra mánudaginn 25. maí, annan í Hvítasunnu. Því færist dreifing á Suðurnesin frá mánudegi yfir á þriðjudag.
Nánari upplýsingar um dreifingu:
Þriðjudaginn, 26. maí og fimmtudaginn 28. maí: Dreifing á SuðurnesinMiðvikudaginn, 27. maí: Dreifing á Selfoss, Hveragerði og nágrenniFöstudaginn, 29. maí: Dreifing á Selfoss og HveragerðiVið hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Fyrir skjóta og skilvirka afgreiðslu mælum við með að nota vefverslun Garra.
Garri fékk viðurkenningu frá VR fyrir að vera eitt af “fyrirtækjum ársins” í flokki stórra fyrirtækja.
Í könnun VR á Fyrirtæki ársins er viðhorf starfsfólks til lykilþátta í starfsumhverfi vinnustaðarins metið. Könnunin er vettvangur fyrir félagsfólk til að koma skoðunum sínum á framfæri og láta stjórnendur vita af því sem vel er gert og hvað betur má gera.
Þær sýna ekki einungis hver staða fyrirtækisins er í augum starfsmanna heldur einnig hver staða þess er í samanburði við önnur fyrirtæki á vinnumarkaði.
Heildareinkunn fyrirtækja er reiknuð út frá viðhorfi starfsfólks til ólíkra þátta starfsumhverfis. Spurt er um stjórnun, launakjör, starfsanda, jafnrétti, starfsánægju, og fleira.
Þau fyrirtæki sem skara fram úr í könnuninni hljóta formlega viðurkenningu, enda ærin ástæða til að vekja athygli á frammistöðu þeirra.
Við hjá Garra erum gríðarlega stolt af þessum árangri og þeirri vegferð sem við erum á. Niðurstöðurnar gefa okkur tækifæri til að vita hvort og hvar úrbóta er þörf sem og hvetur okkur áfram að gera vel.