Komdu og sjáðu hvað Garri hefur upp á að bjóða.
Garri heimsækir Akureyri miðvikudaginn 19. mars og býður til vörukynningar í Verkmenntaskólanum. Við verðum á staðnum frá kl. 17 til 19 með fjölbreytt úrval af gæðavörum. Þetta er kjörið tækifæri til að kynna sér nýjar vörur, fá fræðslu og smakka á úrvali Garra.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og deila spennandi nýjungum!
Til þess að átta okkur á fjölda sem kemur erum við þakklát fyrir að þú sendir okkur skráningu.
Ef það er eitthvað sem þú hefur sérstaklega áhuga á að sjá, sendu okkur línu eða settu inn athugasemd á skráningarform.
Lokað verður í Garra fimmtudaginn 23. apríl, vegna sumardagsins fyrsta.
Vegna lokunar á sumardaginn fyrsta verður dreifing á Suðurnesjum færð til föstudags í þessari viku.
Fram undan eru jafnframt nokkrar fjögurra daga vinnuvikur og því viljum við hvetja viðskiptavini til að panta tímanlega. Fyrir skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum vð með að nota Vefverslun Garra.
Fimmtudaginn 30. apríl er starfsdagur hjá Garra og þá lokar skrifstofan og vöruafgreiðsla kl. 12:00. Dreifing verður þó óbreytt þann dag.
Athygli er einnig vakin á því að föstudaginn 1. maí verður lokað í Garra.
Við þökkum sýndan skilning og hvetjum viðskiptavini til að skipuleggja pantanir með góðum fyrirvara.
Gleðilegt sumar!
Við erum að gera okkar allra besta miðað við veðuraðstæður dagsins. Höfum tekið til pantanir enn það verður töf á dreifingu.
Við munum halda áfram að upplýsa um stöðuna eftir því sem líða tekur á daginn.
Takk fyrir þolinmæðina – og eigið góðan dag!