Lokað er í Garra annan í hvítasunnu, 6.júní og því eru breyttar ferðir í þeirri viku.
Ferðir til Keflavíkur og nágrennis verða eftirfarandi:
Mánudags ferðin til Keflavíkur færist fram á þriðjudag, 7.júní.

Garri heldur keppninrnar Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins fimmtudaginn 5. nóvember á sýgunni Stóreldhúsið í Laugardalshöll.
Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins: Í fyrstu verðlaun er eftirréttanámskeið hjá Cacao Barry í Evrópu. Vinningshafi getur sótt námskeið til 30. júní 2027.
Nemaverðlaun: 50.000 kr. úttekt hjá Garra.Keppnisrétt hafa þau sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik eru metin sérstaklega.Þema ársins er París 1920.
SkylduhráefniSúkkulaði frá Cacao Barry:
Cacao Barry Mi-Amére 58% – Djúpt dökkt súkkulaði með mildum ristuðum kakótónum og fíngerðum, örlítið súrum jurtakenndum undirtón.Val er á milli tvegga púrra frá Capfruit:
Capfruit Apríkósu Puré – Púrran er framleidd úr Bergeron-apríkósum frá Rhône-dalnum í Frakklandi, afbrigði sem er sérstaklega metið í sætabrauðsgerð fyrir náttúrulegt jafnvægi milli sætu og sýru. Apríkósurnar hafa ríkan ilm, fallegan appelsínugulan lit og hreint ávaxtabragð sem nýtur sín vel í eftirréttum þar sem ferskleiki og áferð skipta máli. EÐA:Capfruit Grænepla Puré - Ávaxtapúrra úr grænum „Granny Smith“ eplum sem býður upp á einstaklega ferskt og svalandi bragð, með léttum sýrðum tónum og fallegum ljósgrænum pastelblæ. Eplin eru ræktuð aðeins nokkra kílómetra frá vinnslustöð Capfruit, í hlíðum Rhône-dalsins í Frakklandi.Notkun á súkkulaði eða púrrum frá öðrum framleiðendum er ekki leyfileg í keppninni.
SkráningSkráning fyrir Efirréttur ársins 2026
Skráning fyrir Konfektmoli ársins 2026
Grunnhráefnispakki til æfinga fylgir skráningu og greiðsla á 5.000 kr. staðfestingargjaldi. Gjaldið endurgreiðist þeim sem mæta samkvæmt tímaplani á keppnisstað. Staðfestingargjald skal leggja inn á reikning: 0301-26-000817; kt. 670892-2129.
Skráningarfrestur er til og með 20. október 2026.
Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Eftirréttur ársins
Nánari upplýsingar og vægi matsatriða fyrir Konfektmoli ársins
Nánari upplýsingar veitir Silja í síma 858-3023 eða silja@garri.is
Gangi ykkur vel!
Vegna almyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst er búist við mjög miklu umferðarálagi víða um land. Af þeim sökum geta orðið tafir á afhendingu sendinga til ákveðinna áfangastaða þann dag.
Við hvetjum viðskiptavini sem hafa tök á því að skipuleggja pantanir og sendingar með hliðsjón af þessum aðstæðum. Jafnframt biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem hugsanlegar tafir kunna að valda.
Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra
Við hvetjum alla til að panta tímanlega fyrir verslunarmannahelgina! Einnig minnum við á að það er lokað í Garra frídag verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst.
Dreifing á Suðurnesin er þriðjudaginn 4. ágúst í stað mánudags.
Til að tryggja skjóta og örugga afgreiðslu bendum við á vefverslun Garra
Opið er í vöruafgreiðslu Garra alla laugardaga frá klukkan 10 til 13:00.