Kæru viðskiptavinir.
Garri tilkynnir 2-5 % verðlækkun á innfluttum vörum vegna hagstæðara gengis íslensku krónunnar, að undanskyldum vörum frá Lamb Weston, Pritchitts og CM Foods. Gengi krónunnar hefur styrkst að undanförnu gagnvart erlendum gjaldmiðlum.
Verðlækkanir tóku gildi í verðlista Garra frá og með 1.janúar 2017 og eru eftirfarandi.
Vörur sem leystar eru út í:
CHF lækka um 4% (Oswald kraftar ofl.)
DKK lækka um 4% (Nordic Seafood, FBK, Löfbergs ofl.)
EUR lækka um 5% (Vandemoortele, Ardo, Cacao Barry, Traiteur de Paris, Capfruit, SOSA, krydd ofl.)
SEK lækka um 5% (Katrin pappír, Tingstad, Celest paper, Vileda ofl.)
USD lækka um 2% (Roland, Spartan ofl.)
GBP lækka um 5% (Essential Cuisine kraftar ofl.)
Með von um að verðlækkunin nýtist viðskiptavinum okkar vel.
Facebook síða Garra: www.facebook.com/garriheildverslun
Hafðu samband við söludeild Garra í síma 5700 300 eða sendu inn pöntun á garri@garri.is
Vegna árshátíðar hjá Garra verða breytingar á opnunar- og dreifingartímum dagana 25. til 28. september. Sjá töflu hér fyrir ofan.
Starfsemi í vöruhúsi og dreifinguPantanir sem koma í gegnum vefverslun er hægt að sækja í vöruafgreiðslu Garra föstudaginn 25. september frá klukkan 8 til 16:00 og mánudaginn 28.september frá 12 til 15:00.
Jafnframt er opið í vöruafgreiðslu fyrir sótt pantanir sem koma í gegnum vefverslun laugardaginn 26.september frá klukkan 10 til 14:00.
Mánudaginn 28.september fara sendingar á landsbyggðina með Samskip og Flytjanda. Engin dreifing er á höfuðborgarsvæðinu þann dag.
Við biðlum til viðskiptavina að gera pöntun snemma í næstu viku, þar sem við verðum fáliðuð þessa daga.
Upplýsingar um opnunartíma fyrir sóttar pantanir má sjá hér fyrir ofan.
Skrifstofa og þjónustuborðSkrifstofa og þjónustuborð verða lokuð frá 25. september til 28. september.
Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Til að tryggja skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.
Með fyrirfram þökk fyrir skilning og góða aðstoð, starfsfólk Garra.