Ný vefverslun væntanleg 27. október!

Ný vefverslun væntanleg 27. október!

þriðjudagur 20. okt. 2026 kl. 08.54
Fréttir garra
Ný vefsíða frétt mynd

Við erum afar stolt að kynna að ný vefverslun Garra mun fara í loftið 27. október.

Markmið með nýju vefversluninni er að gera viðskipti enn einfaldari, hraðari og skilvirkari fyrir viðskiptavini okkar. Við höfum hlustað á ábendingar og óskir notenda og lagt áherslu á að bæta bæði upplifun og aðgengi.

Meðal nýjunga í vefversluninni eru:

  • Mest pantað (áður Hraðpöntun), þar sem birtast vörur sem hafa verið pantaðar síðustu þrjá mánuði. Nú verður einnig hægt að fjarlægja vörur af listanum og bæta nýjum vörum við, jafnvel þótt þær hafi ekki verið pantaðar nýlega.
  • Öflugri leitarvél og bættar síur sem gera auðveldara að finna réttu vörurnar. Hægt verður að sía niðurstöður eftir vöruflokkum, tilboðum og fleiri þáttum.
  • Nýtt og nútímalegra útlit, auk bættrar virkni, aukins hraða og fjölmargra annarra endurbóta.

Gott að hafa í huga

  • Allir notendur þurfa að skrá sig inn á reikning sinn á ný eftir að nýja vefverslunin fer í loftið. Notað verður sama netfang og áður, en mikilvægt er að netfangið sem skráð er á reikninginn sé rétt.
  • Ef þú manst ekki lykilorðið þitt getur þú auðveldlega endurstillt það og fengið hlekk sendan í tölvupósti. Mikilvægt er að þú, eða einhver innan fyrirtækisins, hafir aðgang að því netfangi sem tengt er reikningnum.
  • Öll saga og gögn flytjast yfir í nýju vefverslunina. Fyrri pantanir, mínir listar og aðrar persónulegar upplýsingar haldast inni á reikningnum eftir að nýja vefverslunin fer í loftið.

Við viljum þakka viðskiptavinum okkar fyrir ábendingar og samtöl sem hafa hjálpað okkur að þróa nýja vefverslun sem þjónar þörfum þeirra enn betur.


* * English * *

We are proud to announce that Garri's new online store will launch on October 27.

The goal of the new online store is to make doing business with us even simpler, faster, and more efficient for our customers. We have listened carefully to user feedback and requests, with a strong focus on improving both the overall user experience and accessibility.

Some of the new features include:

  • "Mest pantað" (previously "Hraðpöntun"), displaying products that have been ordered within the last three months. Customers will now also be able to remove products from the list and add new ones, even if those products have not been ordered recently.
  • A more powerful search engine and improved filtering options, making it easier to find the right products. Search results can be filtered by product categories, promotions, and other criteria.
  • A new, more modern design, along with improved functionality, increased speed, and numerous other enhancements.

Important Information

  • All users will need to log in to their account again once the new online store goes live. The same email address as before will be used, but it is important to ensure that the email address associated with the account is correct.
  • If you do not remember your password, you can easily reset it and receive a password reset link by email. It is important that you, or someone within your company, has access to the email address connected to the account.
  • All account history and data will be transferred to the new online store. Previous orders, saved lists, and other account information will remain available after the new online store goes live.

We would like to thank our customers for the valuable feedback and conversations that have helped us develop a new online store that serves their needs even better.

Fleiri Fréttir

Breyttir opnunar- og dreifingartímar vegna árshátíðar hjá Garra

Fréttir garra
14. sep 2026

Vegna árshátíðar hjá Garra verða breytingar á opnunar- og dreifingartímum dagana 25. til 28. september. Sjá töflu hér fyrir ofan.

Starfsemi í vöruhúsi og dreifingu

Pantanir sem koma í gegnum vefverslun er hægt að sækja í vöruafgreiðslu Garra föstudaginn 25. september frá klukkan 8 til 16:00 og mánudaginn 28.september frá 12 til 15:00.

Jafnframt er opið í vöruafgreiðslu fyrir sótt pantanir sem koma í gegnum vefverslun laugardaginn 26.september frá klukkan 10 til 14:00.

Mánudaginn 28.september fara sendingar á landsbyggðina með Samskip og Flytjanda. Engin dreifing er á höfuðborgarsvæðinu þann dag.

Við biðlum til viðskiptavina að gera pöntun snemma í næstu viku, þar sem við verðum fáliðuð þessa daga.

Upplýsingar um opnunartíma fyrir sóttar pantanir má sjá hér fyrir ofan.

Skrifstofa og þjónustuborð

Skrifstofa og þjónustuborð verða lokuð frá 25. september til 28. september.

Við hvetjum viðskiptavini til að gera pantanir tímanlega. Til að tryggja skjóta og skilvirka afgreiðslu pantana mælum við með að nota vefverslun Garra.

Með fyrirfram þökk fyrir skilning og góða aðstoð, starfsfólk Garra.

Lesa nánar